Minnst 17 eru slasaðir, þar af fjórir alvarlega, eftir að tvær lestir skullu saman milli Hillerød og Kareup á Norður-Sjálandi í morgun. Danska ríkisútvarpið DR greinir frá. Lestirnar skullu beint framan á hvor aðra á lestarleið sem heitir Gribskovbanen.Mikill fjöldi viðbragðsaðila er á vettvangi og vinna á vettvangi stendur enn yfir. Búið er að koma öllum slösuðum í sjúkrabíla og í sjúkraflug, og þeim farþegum sem eru heilir á húfi hefur verið safnað saman.Ekki er ljóst hvað olli lestarslysinu og lögreglan hefur óskað eftir vitnum. Lögregla verður með blaðamannafund innan skamms.Fréttin verður uppfærð.