Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, segir í viðtali við Financial Times að Evrópusambandið gæti boðið Íslandi undanþágur (e. exemptions) frá fiskveiðistefnu sambandsins til að flýta fyrir umsóknarferlinu. „Það er klárlega svigrúm fyrir sveigjanleika,“ segir Kadis.Álíka skilaboð hafa komið frá öðrum embættismönnum innan ESB, þar á meðal við stækkunarstjóra ESB, Mörtu Kos, í viðtali við RÚV.Aðspurður um það hvort ESB sé tilbúið til að veita Íslandi undanþágur sagði Kadis svo vera og um það yrði rætt í umsóknarferlinu. Hann sagði að hægt væri leysa ágreiningsefni líkt um samnýtingu á sameiginlegum fiskistofnum. EINNIG HORFT TIL NOREGS Kadis sagði í viðtalinu við FT að sveigjanleiki varðandi fiskveiðistefnu sambandsins gæti gert það fýsilegri kost fyrir Noreg til að ganga í