Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Blaðamaður myrtur í Líbanon

Fimm voru drepnir í loftárás ísraelska hersins á Suður-Líbanon í gær. Líbanskur blaðamaður, Amal Khalil, var ein þeirra sem drepin var í árásinni og blaðaljósmyndarinn Zeinab Faraj særðist. Báðar voru þær við störf þegar árásin var gerð.Talsmaður líbanska Rauða krossins sagði við fréttaveituna AFP að Rauða krossinum hefði tekist að bjarga Faraj en ekki náðist að bjarga Khalil því skotið var að björgunarfólki þegar þau reyndu að bjarga henni.Ráðherra upplýsingamála í Líbanon, Paul Morcos, fordæmdi árásirnar í færslu á X og sagði árásir á blaðamenn vera alvarlegan glæp og augljóst brot á alþjóðlegum mannúðarrétti. Khalil vann fyrir líbanska dagblaðið Al-Akhbar og Faraj er sjálfstætt starfandi blaðaljósmyndari og vann með Khalil.Viðræður milli Ísrael og Líbanon halda áfram í Washington í Band
Blaðamaður myrtur í Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta