Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Plastplokkarinn Ási kisi plokkar plast allt árið um kring

Kötturinn Ási er fagköttur í plokki en hann hefur verið iðinn við plastplokk allt frá því hann kom til fjölskyldunnar. Sigríður Júlía Bjarnadóttir eigandi Ása segir að hann hafi fyrst komið til fjölskyldunnar því heimilisköttinn sem fyrir var bráðvantaði félagsskap.Kötturinn er duglegur að koma heim með plastpoka sem hann finnur á göngu sinni um bæinn. Þegar heim er komið montar hann sig iðulega af afrakstrinum með miklu mjálmi. Sigríður, eigandi Ása, segist ekkert vita hvaðan plastæði kattarins komi, einn daginn hafi hann bara byrjað að koma með gjafir.„Það komu bara fleiri og fleiri og fleiri plastpokar, dag eftir dag, og honum var nú hrósað fyrir þetta.“Ási er 6 ára gamall svo hann á vonandi nóg eftir af plokk-ævistarfinu. Heimabær Ása, Hafnarfjörður, fékk Ása til að verða andlit plokks
Plastplokkarinn Ási kisi plokkar plast allt árið um kring

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta