Jón Pétur Zimsen þingmaður og sautján vetra gamall sonur hans lentu í bráðri lífshættu á Kollafirði á mánudagskvöldið þegar bátum beggja hvolfdi á firðinum. Komust þeir að lokum kaldir á kjöl, Jón Pétur með þungar regnbuxur á hælunum sem tálmuðu honum hreyfingar í greipum Ægis.