Fimm listar eru í framboði á Akranesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru * Ragnar Baldvin Sæmundsson, Framsóknarflokki og frjálsra * Jón Guðni Guðmundsson, Viðreisn * Líf Lárusdóttir, Sjálfstæðisflokki * Hrafn Ágúst Björnsson, Miðflokki * Sigurður Vopni Vatnsdal, Samfylkingu Um 8.500 manns búa í sveitarfélaginu Akranesi og voru 5.700 á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum árið 2022. Rúmlega 3.500 greiddu þá atkvæði.Umsjónarmenn eru Gréta Sigríður Einarsdóttir og Magnús Geir Eyjólfsson.