Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Leit frestað þar til frekari vísbendingar koma fram

Leit að erlendum ferðamanni sem sást síðast til í nágrenni við Háafoss í Þjórsárdal hefur verið frestað. Leitin hefur ekki enn borið árangur en hún hefur staðið yfir í um sólarhring. Lögreglan á Suðurlandi hefur frestað leitinni þar til fleiri vísbendingar hafa komið fram. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.Ferðamaðurinn skilaði sér ekki á gististað sinn fyrr í vikunni og var því haft samband við lögreglu. Eftir eftirgrennslan lögreglu var kallað eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu. Leitarsvæðið við Háafoss er krefjandi en í tilkynningu Landsbjargar segir að mikill krapi og drulla séu á svæðinu. Leitin hefur enn ekki borið árangur.Landsbjörg
Leit frestað þar til frekari vísbendingar koma fram

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta