Úttekt Ríkisendurskoðunar á undirbúningi og gerð varnargarða á Reykjanesskaga var birt í dag. Þar kemur meðal annars fram að verka- og ábyrgðarskipting var óskýr. Ríkislögreglustjóri hefði átt að leita sér óháðrar ráðgjafar.Miðað við það sem þarna kemur fram, geturðu tekið undir þessa gagnrýni á ríkislögreglustjóra?„Ég myndi frekar segja að þarna var ríkisstofnun sem fékk gríðarlega stórt verkefni í fangið án nokkurs fyrirvara og við aðstæður sem að enginn hafði farið í gegnum áður, að reisa svona garða,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. „Mér finnst það vera stóra sagan í þessu, að okkur tókst að verja þessa hagsmuni.“Dómsmálaráðherra segir rétt að skoða hvernig staðið var að uppbyggingu varnargarða á Reykjanesskaga í ljósi aðstæðna á þeim tíma. Verkefnið var ríkis