Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Metþáttaka á Andrésar Andarleikunum

Keppendur á afmælisleikum Andrésar Andar í ár eru 1084, sem er met. Leikarnir voru settir í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld, að lokinni vel heppnaðri skrúðgöngu. Fyrstu leikarnir fóru fram fyrir 50 árum síðan, árið 1976, og er mikið lagt í þá í ár.Mótshaldarar eiga von á allt að 4000 gestum í bæinn í tengslum við leikana sem hafa aldrei verið eins fjölmennir. Nægur snjór er enn í Hlíðarfjalli en aðeins einu sinni í 50 ára sögu þeirra hefur þurft að aflýsa þeim sökum snjóleysis.Keppt er í hefðbundnum greinum, alpagreinum, skíðagöngu og snjóbrettum venju samkvæmt en í ár er keppt í skíðaskotfimi í fyrsta sinn.Andrésar Andarleikarnir hófust á skrúðgöngu í blíðskaparveðri á Akureyri í dag. Metfjöldi þátttakenda er á leikunum og í fyrsta sinn er keppt í skíðaskotfimi
Metþáttaka á Andrésar Andarleikunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta