Foreldrar geta verið feimnir við að fylgjast með samfélagsmiðlanotkun barna sinna, að mati Símonar Geirs Geirssonar samfélagslögregluþjóns sem segir þörf á auknum forvörnum. Þeir sem ginna börn beita úthugsuðum aðferðum.„Við þekkjum hætturnar í umferðinni, við þekkjum hætturnar í samfélaginu en við þurfum líka að þekkja hætturnar sem geta verið á samfélagsmiðlum,“ segir Símon.Mæður tveggja fjórtán ára stúlkna sem karlmenn ginntu upp í bíl sinn um helgina, eftir samskipti á Instagram, sögðust í viðtali við fréttastofu vera vanmáttugar gagnvart þeim hættum sem leynast á samfélagsmiðlum.Það getur verið mismunandi eftir hverfum hvaða samfélagsmiðlar eru notaðir til að ginna börn. Lögreglumaður telur foreldra stundum feimna við að fylgjast með samfélagsmiðlanotkun barna sinna.Símon segir þá sem