Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kalla eftir samtali við ríkið um mótvægisaðgerðir, eins og að undirbúa gerð varnargarða, vegna nýrrar skýrslu Veðurstofu um hættu á hraunrennsli yfir hluta byggðarinnar. Bæjarstjórinn telur ekki ástæðu til að falla frá áætlunum um ný hverfi á hraunasvæðum.