Kynning á prófverkefnum hjá Verkfræðideild Háskóla Íslands fór fram í dag. Skírnir Mattías Pétursson, nemi í véla- og iðnaðarverkfræði, sýndi þar dróna sem hann bjó til.Hægt er að forrita drónann til þess að leita að fólki, til dæmis með því að nota hitamyndavél. „Sem þýðir bara að hann getur séð þá hitann á líkamanum,“ segir Skírnir. „Til dæmis í skóginum, þá er mjög erfitt að sjá fólk bara með myndavél eða með þyrlu, út af því að það er svo mikið af trjám.“ Þar komi hitamyndavélin sér vel. „Þá get ég bara eiginlega strax séð einhverja persónu og þá geta björgunarmenn komið að sækja.“Er hægt að forrita hann til að leita einhvern uppi eftir útliti? „Já, það er eiginlega hægt ef maður tengist við tölvuna,“ segir Skírnir.