Kjósendur í Virginíu í Bandaríkjunum samþykktu í gær ný kjördæmi í ríkinu sem teiknuð voru upp af Demókrötum og gæti fjölgað þingsætum þeirra þar um fjögur. Það yrði á kostnað repúblikana en hæstiréttur ríkisins á þó eftir að úrskurða um hvort nýju kjördæmin séu lögleg eða ekki.