Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Svartfjallaland færist nær Evrópusambandinu

Svartfjallaland færðist skrefi nær Evrópusambandinu í dag þegar ríki sambandsins samþykktu að hefja vinnu við inngöngusáttmála landsins. Settur verður á laggirnar sérstakur starfshópur til að setja saman drög að samningi.Antonio Costa forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins segir þetta mikilvægt skref í átt að inngöngu. Nú sé Evrópusambandið í fyrsta sinn í áratug að telja niður til næstu stækkunar. Nýtt ríki hefur ekki verið tekið inn í sambandið síðan Króatía gekk inn árið 2013 en Svartfjallaland og Albanía hafa verið talin komast næst því. STEFNA AÐ AÐILD EFTIR TVÖ ÁR Búið er að loka 14 af 35 köflum í aðildarviðræðum Svartfjallalands við Evrópusambandið. Hinir kaflarnir eru þegar opnir. Til samanburðar lokaði Ísland 11 köflum í sínum aðildarviðræðum áður en þær voru stöðvaðar árið 201
Svartfjallaland færist nær Evrópusambandinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta