Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hætta á gróðureldum næstu daga

Slökkviliðið varar við aukinni hættu á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu næstu daga eftir langvarandi þurrka.Gróður er ekki farinn að taka við sér og mikið af sinu er til staðar, sem getur skapað hættu á gróðureldi.„Við hvetjum fólk að sýna sérstaka aðgát við meðferð elds utandyra, forðast opinn eld og ganga úr skugga um að ekki kvikni í gróðri,“ segir í tilkynningu frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Verði fólk vart við gróðureld er það beðið um að hafa strax samband við neyðarlínuna í síma 112.Veðurstofan spáir rigningu síðar um helgina sem gæti dregið úr hættunni.RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir
Hætta á gróðureldum næstu daga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta