Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íslenskt tryggingafélag varar við læknastofu á Kanarí

Tryggingafélagið Vörður varar fólk við því að sækja sér þjónustu á læknastofunni Clinic Diamond á eyjunni Gran Canaria. Þetta er vegna fjölda svikamála sem tryggingafélaginu hefur borist.Starfsfólk stofunnar er sagt hafa lagt það í vana sinn að ýta að fólki ónauðsynlegri læknisþjónustu og rukka fyrir það himinháar upphæðir.Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum hjá Verði, segir þetta vera í fyrsta sinn sem tryggingafélagið grípi til þessa ráðs. Hann var gestur Síðdegisútvarpsins í dag. ÓNAUÐSYNLEGAR SKOÐANIR FYRIR HÁAR FJÁRHÆÐIR Ágúst segir að fyrir nokkrum vikum hafi Vörður farið að sjá fyrstu dæmin um reikninga sem hafi vakið spurningar. Fleiri og fleiri hafi fylgt í kjölfarið.„Þarna er nánast merkt í allar skoðanir á eyðublaðinu trekk í trekk. Okkar trúnaðarlæknir setur spurningame
Íslenskt tryggingafélag varar við læknastofu á Kanarí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta