Fólkið sem dvaldi á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði sem börn segir allt svipaða sögu af búsetu sinni. Þau telja að helsta ástæðan fyrir því af hverju þau voru á fósturheimilinu sé sú að það hafi verið fjárhagslega ábatasamt fyrir eigendur fósturheimilisins. Fólkið sem fréttastofa hefur rætt við lýsir harðræði og andlegu ofbeldi sem það segist hafa orðið fyrir.Einn þeirra sem fréttastofa hefur rætt við er Burkni Þór Sveinsson. Í vitnaskýrslutöku hjá lögreglunni árið 2019 lýsti hann búsetu sinni á heimilinu þannig að hann hefði verið „labbandi launatékki“ fyrir eigendurna. Starfsemi heimilisins var rannsökuð á árunum 2019 til 2021 en rannsóknin var felld niður árið 2021. Í skýrslutökunni segir Burkni Þór að búseta hans á Gauksstöðum hafi verið „hörmuleg“ reynsla. FENGU 300 TIL 600 ÞÚSU