Blaðamannafélag Íslands fordæmir síaukna og harðnandi orðræðu í garð blaðamanna og fjölmiðla, þar á meðal frá kjörnum fulltrúum og öðru áhrifafólki í samfélaginu. Þetta kemur fram í ályktun um stöðu blaðamennsku á Íslandi og á alþjóðavettvangi sem samþykkt var á aðalfundi Blaðamannafélags Íslands (BÍ) sem haldinn var í gær.„Þegar grafið er undan trúverðugleika blaðamanna með ómálefnalegum árásum, dylgjum og alvarlegum ásökunum vegna starfa þeirra er ekki aðeins vegið að einstökum blaðamönnum heldur að fjölmiðlafrelsi og rétti almennings til upplýsinga. Slík þróun getur haft kælingaráhrif á umfjöllun fjölmiðla um mikilvæg samfélagsmál og dregið úr getu blaðamanna til að sinna starfi sínu af festu og sjálfstæði,“ segir í ályktuninni. ÞRÝSTINGUR STJÓRNMÁLAFÓLKS ÓÁSÆTTANLEGUR Í ályktuninni