Uppbygging varnargarða á Reykjanesskaga var ríkislögreglustjóra ofviða. Ríkisendurskoðun gagnrýnir óskýra verkaskiptingu, skort á eftirliti með kostnaði og hvernig ákvarðanir voru teknar. Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir að skýra þurfi skipulag og viðbragð við náttúruhamförum.Úttekt Ríkisendurskoðunar var kynnt á fundi nefndarinnar í morgun. Í henni segir að embætti ríkislögreglustjóra hafi ekki haft nauðsynlega þekkingu eða burði til að fara með jafn umfangsmiklar og flóknar verklegar framkvæmdir og uppbyggingu varnargarða á Reykjanesskaga. SETJUM FÓLK Í AÐSTÆÐUR SEM ÞAU RÁÐA EKKI VIÐ Jón Gnarr, varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir að skýra þurfi hver beri ábyrgð í aðgerðum sem þessum.„Þetta er náttúrlega ákveðið reiðarslag, þessi skýrs