Nýjar skýrslur Veðurstofu Íslands um hraunavá sýna glögglega hvar gosið gæti og hraun runnið á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu. Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki. Vatnsból Hafnfirðinga í Kaldárbotnum og vatnsból Hvergerðinga í Selhæðum eru á efsta hættustigi.Röskun á starfsemi þessara lykilinnviða getur haft víðtækar afleiðingar og í skýrslunni segir að unnið sé að því að auka rekstrarþol þeirra. Einkum eru vatnsbólin viðkvæm, því hraun getur runnið yfir þau en mengun frá gosi getur einnig spillt bólunum. Almennt eru vatnsból sem taka vatn nálægt yfirborði í meiri hættu en þar sem djúpt er borað. TRYGGJA VARALEIÐIR Pétur Krogh Ólafsson, forstöðumaður sjálfbærni og öryggis innviða hjá Veitum, segir að skýrslan komi ekki beinlínis á óvart enda séu virkjanir á jarðhi