Lagið „Fjólan“ sem hefst á orðunum „Heiðbláa fjólan mín fríða“ er þekktasta lag tónskáldsins Þórarins Jónssonar sem fæddist árið 1900. Í viðtali sem Morgunblaðið tók við Þórarin 18. september 1970 í tilefni af sjötugsafmæli hans sagði Þórarinn frá tilurð lagsins. FRÁSÖGN ÞÓRARINS Faðir minn var fátækur fiskimaður á Mjóafirði, og ég var snemma látinn létta undir með honum; tólf ára fór ég í fyrsta róðurinn. En það var svo einkennilegt, að þegar við rerum á þöglum firðinum, streymdi allt í tónlist í gegn um hausinn á mér. Og í Norðfjarðarnípunni sá ég mína bókhlöðu. Þar voru geysistórir konsertsalir og þar heyrði ég „Fjóluna" spilaða fyrsta sinni.Þetta sagði Þórarinn Jónsson tónskáld í viðtalinu árið 1970. Norðfjarðarnípa er ysti hluti fjallgarðsins milli Norðfjarðar og Mjóafjarðar. Nípan