Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða fyrr í dag. Ævar Þór Benediktsson hlaut verðlaun í flokki frumsaminna verka fyrir Skólastjórann, Birna Daníelsdóttir í flokki myndlýsinga fyrir Ég bý í risalandi og Jón St. Kristjánsson í flokki þýðinga fyrir Undrarútuna.