Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og spurningarnar sem þar eru lagðar til grundvallar standast alþjóðleg viðmið að mati Feneyjanefndarinnar, að því gefnu að kjósendur fái í hendur traustar og ítarlegar upplýsingar í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar.Utanríkismálanefnd Alþingis bar efni og spurningar atkvæðagreiðslunnar undir Feneyjarnefndina sem er ráðgefandi sérfræðinganefnd á vegum Evrópuráðsins um stjórnarskrármál, lýðræði og réttarríki. Umsögn nefndarinnar hefur verið birt á vef Alþingis.Nefndin leggur mikið upp úr því að kjósendur fái skýrar og hlutlausar upplýsingar í aðdraganda kosninganna, til að mynda hvað það þýðir í raun að „halda áfram“ viðræðum og það að kjósa „já“ þýðir ekki sjálfkrafa aðild að Evrópusambandinu, heldur aðeins að viðræður hefji