Einn er slasaður en þó ekki alvarlega eftir umferðarslys á Hafnarfjarðarvegi við Fossvog í norðurátt rétt eftir klukkan þrjú í dag. Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang, að sögn varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðardeild, segir að tvö ökutæki hafi lent í slysinu. „Það eru miklar umferðartafir, frá Hafnarfirði inn í Reykjavík vegna þessa,“ segir hann.Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali við Árna Friðleifsson. Samkvæmt fyrstu upplýsingum varð slysið á Reykjanesbraut en það hefur verið leiðrétt.