Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Treystir því að hún sé að vísa okkur veginn

Það styttist óðfluga í opnun á Feneyjatvíæringnum í myndlist. Þessi stærsti myndlistarviðburður heims er nú haldinn í 61. sinn og verður opnaður 9. maí og stendur yfir fram í nóvember. Ásta Fanney Sigurðardóttir fer fyrir Íslands hönd og sýning hennar hefur fengið titilinn Pocket Universe og samanstendur af vídjóverki, hljóðverki, skúlptúrum og gjörningum.Halla Harðardóttir ræddi við Margrét Áskelsdóttir og Unnar Örn, sýningarstjóra íslenska skálans, í Víðsjá á Rás 1.Ásta Fanney er ein af fremstu gjörningalistamönnum landsins og er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir. Unnar Örn segir hana vinna á mörkum listgreina. „Það þekkja hana margir sem skáld, aðrir sem jafnvel tónlistarmann og svo sumir sem myndlistarmann. Hún vinnur í ólíka miðla með bæði myndir, texta og svo auðvitað performansinn
Treystir því að hún sé að vísa okkur veginn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta