Karlmaður hefur verið dæmdur til 90 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir auðgunarbrot, brot gegn útlendingalögum og fíkniefnalagabrot. Hann var aftur á móti sýknaður af ákæru fyrir að hafa ítrekað valdið hneykslan og óspektum á almannafæri vegna ölvunar og ónæði með því að betla þar peninga af almenningi með harmonikkuspili.