Yfirvöld í Suður-Kóreu hafa að undangenginni rannsókn komist að þeirri niðurstöðu að tvær orrustuþotur hafi rekist á í flugi árið 2021 vegna þess að flugmennirnir voru að taka myndir.Flugmennirnir voru á leið til baka úr herflugi skammt frá borginni Daegu þegar þetta gerðist. Þeir sluppu ómeiddir en flugvélarnar stórskemmdust.Annar flugmaðurinn var í sínu síðasta flugi fyrir herinn. Hann var í aftari vélinni þegar hann byrjaði að taka myndir og myndskeið á símann sinn til að eiga til minningar um flugið. Talið er að flugvélarnar hafi þá verið á hátt í 600 km hraða. Þegar flugmaður hinnar vélarinnar tók eftir því, bað hann annan flugmann í þeirri vél að taka mynd af þeim sem var að hætta, hækkaði svo flugið og sneri vél sinni svo að hann fengi betra sjónarhorn á vél þess sem var að hætta. E