Umboðsmaður barna fer fram á að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga kanni sérstaklega hvort öryggi barna sé fyllilega tryggt í líkamsræktarstöðvum. Tilefnið eru ábendingar um ófullnægjandi öryggi á slíkum stöðvum, meðal annars tilkynning um að ungbarn hafi verið flutt á sjúkrahús eftir að hafa fengið lóð í kviðinn.„Við höfum heyrt af því að það hafi orðið slys. Til dæmis heyrðum við af því að ungabarn hefði fengið lóð í kviðinn og hefði þurft að fara með sjúkrabíl. Þannig að við þurfum auðvitað að fara að huga að þessu mjög vel,“ segir Salvör Nordal umboðsmaður barna.„Við höfum áður fengið svona erindi þannig að okkur fannst ástæða til þess að beina því til heilbrigðiseftirlita að þetta yrði skoðað sérstaklega.“ BÖRN Í LÍKAMSRÆKTARSAL ÁN EFTIRLITS Í erindi umboðsmanns barna er sérstaklega