Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hvalveiðiráðgjöf lækkuð um fimmtung

Hafrannsóknarstofnun ráðleggur að veiðar á langreyði verði ekki meiri en 150 dýr á komandi veiðitímabili. Þetta er 20 prósenta lækkun frá fyrri ráðgjöf. Samkvæmt tilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun var ráðgjöfin lækkuð í varúðarskyni því niðurstöður talninga frá 2024 hafi ekki verið samþykktar af nefndum innan Norður Atlantshafs Sjávarspendýraráðsins, NAMMCO.Engar hvalveiðar hafa verið við Íslandsstrendur síðustu tvö ár. Bjarni Benediktsson starfandi matvælaráðherra gaf út leyfi til hvalveiða til næstu fimm ára í lok 2024. Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf sagði síðasta vor að hvalveiðar myndu ekki borga sig það sumarið og því var enginn hvalur veiddur í fyrra.Fréttin verður uppfærð.
Hvalveiðiráðgjöf lækkuð um fimmtung

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta