Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Olía rennur um Druzhba-leiðsluna og lán ESB til Úkraínu samþykkt

Móttökustöð fyrir olíu í Ungverjalandi, þar sem olía um Druzhba leiðsluna kemur á áfangastað.MTI / EPAOlía frá Rússlandi er farin að renna um Druzhba olíuleiðsluna sem liggur um Úkraínu til Ungverjalands og Slóvaíku, sögðu embættismenn í þessum ríkjum í morgun. Olíuflutningar um leiðsluna stöðvuðust snemma á þessu ári, og stjórnvöld í Úkraínu hafa sagt að ástæðan hafi verið loftárásir Rússa á dælustöð sem tengist leiðslunni.Um svipað leyti í morgun varð ljóst að andstaða Ungverja og Slóvaíku við afgreiðslu á 90 milljarða evra láni Evrópusambandsins til Úkraínu væri ekki lengur fyrir hendi. Það kom í ljós á fundi fastafulltrúa aðildarríkjanna í Brussel í morgun, þar sem tillagan um lánið var samþykkt, sem og refsiaðgerðir ESB gegn Rússum.
Olía rennur um Druzhba-leiðsluna og lán ESB til Úkraínu samþykkt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta