Starfsfólk Landspítalans hefur verið boðað á fund um fyrirhugaðar hagræðingaraðgerðir vegna skorts á fjárveitingum til starfsemi hans. Þetta kemur fram í pósti sem var sendur til starfsfólks í dag.Samkvæmt heimildum fréttastofu verður fundurinn haldinn í næstu viku. Ekki liggur fyrir hverjar aðgerðirnar eru en stjórnendur innan spítalans hafa sagt uppsagnir fylgja því að mæta aðhaldskröfu stjórnvalda.Stjórnendur og starfsfólk Landspítalans hafa lýst þungum áhyggjum af áhrifum aðhaldskröfunnar á þjónustu við sjúklinga og Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sagt að krafan sé ekki raunhæf. UPPSAGNIR Í BÍGERÐ Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðalyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sagði að fækka þyrfti fólki í lágu starfshlutfalli til að hægt væri að ráða fleiri í hær