Enski gítarleikarinn og rokkgoðsögnin Dave Mason er látinn, 79 ára að aldri. Mason var einn af stofnmeðlimum proggrokksveitarinnar Traffic, spilaði undir á plötum Jimi Hendrix, George Harrison og Rolling Stones, túraði með Eric Clapton og samdi slagarana „Feelin’ Alright?“ og „We Just Disagree“.