Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fleiri telja efnahagsstöðuna á Íslandi slæma en góða

Rúmur helmingur Íslendinga telur efnahagsstöðuna hér á landi vera slæma, eða 55%. Þar af segja 12% stöðuna mjög slæma en 43% segja hana frekar slæma. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar frá Maskínu.Frá því á sama tíma í fyrra hefur þeim fækkað sem telja efnahagsástandið gott. Í nýjustu könnun Maskínu töldu 45% stöðuna góða en í fyrra var hlutfallið 63%. Landsmenn líta efnahagsstöðuna þó bjartari augum í dag en árin 2024 og 2023.Fleiri karlar en konur telja efnahagsástandið gott. Það gera tæp 48% karla samanborið við tæp 41% kvenna. Þá telja þau sem eldri eru stöðuna betri en þau yngri. Í elsta aldursflokknum, sem nær til þeirra sem eru 70 ára og eldri, segja 63,5% efnahagsstöðuna góða. Rétt rúmlega helmingur í næstelsta hópnum, 60-69 ára, er sama sinnis. Í öðrum aldurshópum telja um og
Fleiri telja efnahagsstöðuna á Íslandi slæma en góða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta