„Við getum aldrei fengið evrópska vexti ef við erum ekki með evrópskt regluverk,“ að sögn fyrrverandi bankastjóra Kviku, og bendir á að „ofuráhersla á varfærni“ leiði ekki endilega til skilvirkni heldur getur fremur orðið til þess að fjármálakerfið verði lakara við að sinna meginhlutverki sínu að miðla fjármagni með hagkvæmustum hætti. Hann segir jafnframt „skynsamlegt og nauðsynlegt“ að grípa til aðgerða til að auka þátttöku á innlendum fjármálamarkaði sem einkennist núna af einsleitni og veikri verðmyndun.