Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Leita erlends ferðamanns í grennd við Háafoss

Lögreglan á Suðurlandi heldur áfram leit að erlendum ferðamanni í grennd við Háafoss í Þjórsárdal í dag. Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðuðu við leit að manninum í gær en hún bar ekki árangur. Að sögn Þorsteins M. Kristinssonar aðalvarðstjóra barst lögreglu tilkynning frá gististað eftir hádegi í gær eftir að maðurinn skilaði sér ekki. Eftir eftirgrennslan lögreglu var kallað eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu. Auk þess voru drónar notaðir í leitinni sem stóð fram í myrkur.Þorsteinn segir leitarsvæðið ekki mjög stórt eins og er og bundið við nágrenni Háafoss. Leitarsvæðið verði þó stækkað ef leitin ber ekki árangur.
Leita erlends ferðamanns í grennd við Háafoss

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta