Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fella niður skólahald eftir hótun um skot­árás

Skólahald í að minnsta kosti 20 skólum í sænska bænum Borlänge var fellt niður í dag eftir að ofbeldishótun barst bæjaryfirvöldum. Samkvæmt heimildum Aftonbladet snerist hótunin um skotárás.Í umfjöllun sænska ríkissjónvarpsins, SVT, segir að hótunin hafi borist í nótt. Samkvæmt heimildum SVT beindist hún gegn einum skóla í bænum. Eftir að hún barst ákvað starfsfólk sveitarfélagsins að loka nokkrum skólum af ólíkum skólastigum í öryggisskyni en þó ekki öllum. Ákvörðun um hvaða skólum yrði lokað var tekin út frá staðsetningu þeirra, að því er segir í frétt Aftonbladet.Í það minnsta fjórir einkaskólar í bænum hafa einnig ákveðið að fella niður skólahald í dag.Sænska lögreglan hefur hafið rannsókn á hótuninni en segir það of snemmt að segja til um hvort alvara sé að baki henni. Enginn hefur ve
Fella niður skólahald eftir hótun um skot­árás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta