Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Afganskir flóttamenn hugsanlega fluttir til Kongó eða heimalandsins

Afganarnir flúðu heimaland sitt 2021 þegar Bandaríkjaher yfirgaf Afganistan og talibanar tóku yfir. Margir í þessum hópi störfuðu með bandaríska hernum í Afganistan og flúðu landið af ótta við ofsóknir talibana. Fólkið hefur búið í búðunum í Katar og beðið þess að fá landvistarleyfi í Bandaríkjunum.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hert mjög innflytjendalöggjöf í Bandaríkjunum í seinni forsetatíð sinni. Ríkisstjórn hans hafði lýst yfir að búðunum í Katar ætti að loka 31. mars.Samkvæmt hópnum AfghanEvac, sem er hópur sem aðstoðar Afgana, er Bandaríkjastjórn sögð vera að skoða þann möguleika að flytja fólkið til Kongó í Afríku eða bjóða því að snúa aftur heim til Afganistan. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur ekki viljað staðfesta þetta en segir að verið sé að skoða hvort fólk vilji s
Afganskir flóttamenn hugsanlega fluttir til Kongó eða heimalandsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta