Tæplega 6.200 íbúðir voru til sölu í byrjun aprílmánaðar og hefur þeim fjölgað um rúmlega 1.800 á síðustu 12 mánuðum. Undanfarið ár hefur framboð aukist mest hlutfallslega í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, eða um 67%. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Í tilkynningu stofnunarinnar segir að rólegt sé um að litast á fasteignamarkaði. Níu af hverjum tíu fasteignasölum telja virkni fasteignamarkaðarins litla miðað við árstíma, samkvæmt niðurstöðum spurningakönnunar sem HMS framkvæmir í hverjum mánuði. Fasteignasalar telja verðþróun á markaðnum einkennast í auknum mæli af verðlækkunum. Í byrjun apríl töldu sjö af hverjum tíu verð fara lækkandi, samanborið við 60% í byrjun mars og 50% í byrjun febrúar. Líkt og greint var frá í gær hefur húsnæðisverð læ