Í dag taka tvær hæðamiðjur að myndast suður af landinu, ein í suðvestri og önnur í suðaustri. Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður hæðasvæðið heldur minna um sig, með eina miðju suðaustur af landi og því virðist ekkert lát vera á fremur hægum vestlægum eða breytilegum áttum næstu daga.Á laugardag myndast hæðarhryggur yfir Færeyjum sem veldur suðaustlægum eða breytilegum áttum. Á sama tíma nálgast lægðardrag landið frá víðáttumiklu lágþrýstisvæði við Nýfundnaland. Það ber með sér rakt loft og því má gera ráð fyrir rigningu um kvöldið. Þetta lægðasvæði þokast austur yfir Atlantshaf langt inn í næstu viku og því er útlit fyrir vætusamt veður. Það verður þó fremur milt og rólegt.Veðurhorfur á landinu næsta sólarhringinn eru svohljóðandi:Yfirleitt fremur hæg vestlæg eða breytileg átt en suðvest