Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stelpur úr MS bjuggu til heilsudrykk út frá þörfum Íslendinga

Stelpurnar þekktust ekkert fyrirfram en eru allar á lokaönn í MS. Þær skrifuðu niður fimm vandamál í sínu lífi og það sem sameinaði þær voru magavandamál. Því var farið í að finna lausn á því máli og úr varð heilsudrykkurinn Blær sem er bæði hluti af lokaverkefni stelpnanna í skólanum og framlag þeirra á Vörumessunni. Ölgerðin valdi hópinn til samstarfs en í drykknum eru til að mynda góðgerlar, akasíutrefjar og C- og D-vítamín en ekkert koffín.„Þetta var krefjandi fyrst, við þurftum að passa samskipti og svona. Við erum búnar að vinna að þessu núna í hálft ár. Við hófum forsölu og hún gekk vel. Vonandi kemur þessi drykkur á markað í haust,“ segja stelpurnar.Hópinn skipa þær Tekla Ósk Bjarnadóttir, Hafdís Lilja Jónsdóttir, Rebekka Lind Kristinsdóttir og Sólný Helga Sigurðardóttir.
Stelpur úr MS bjuggu til heilsudrykk út frá þörfum Íslendinga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta