Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hakkarahópur grunaður um að hafa framið stærsta rán ársins á rafmyntum

Alræmdur norðurkóreskur hakkarahópur er grunaður um að hafa rænt rafmyntum að verðmæti um 300 milljón dollara eða um 36,7 milljarða íslenskra króna um helgina.Þetta er stærsta rán á rafmyntum sem vitað er um á þessu ári. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svo háþróað rafmyntarán er tengt við Norður-Kóreu en stolnar rafmyntir eru notaðar til að fjármagna þróun kjarnorkuvopna samkvæmt nefnd Sameinuðu þjóðanna.Hópurinn notar skammstöfun Norður-Kóreu í nafni sínu; DPRK Lazarus Group en DPRK er stytting á Democratic People´s Republic of Korea.Nefnd Sameinuðu þjóðanna áætlar að Norður-Kórea hafi rænt yfir þremur milljörðum dollara í rafmyntum síðan 2017. Bandaríkin sökuðu Norður-Kóreu um að hafa framið eitt stærsta rán sögunnar á rafmyntum á síðasta ári, þegar rafmyntum að andvirði 1,5 milljarða do
Hakkarahópur grunaður um að hafa framið stærsta rán ársins á rafmyntum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta