Fulltrúar Ísrael og Líbanon funda í Washington í Bandaríkjunum á fimmtudaginn. Þjóðirnar samþykktu 10 daga vopnahlé sín á milli á föstudaginn og Hezbollah-samtökin einnig. Árásir hafa þó haldið áfram. Ísraelsher hefur varað Líbana við að snúa til baka á heimili sín í Suður-Líbanon. Þá gerðu Hezbolla-liðar árásir á Norður-Ísrael í gær, sem þeir segja að hafi verið til að svara fyrir brot Ísraela á vopnahléinu. Fréttaveitan AFP greinir frá því að samkvæmt ríkisstjórn Líbanon hafi að minnsta kosti 2.454 verið drepnir í Líbanon síðan stríðið milli Ísraela og Líbana hófst 2. mars.Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gærkvöld að hann hyggist framlengja vopnahléið þar til Íranar setji fram samstillta tillögu um hvernig hægt væri að binda enda á átök