Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fangi tekinn af lífi í Flórída

Fangi í Flórída var tekinn af lífi í gær með banvænni sprautu í Raiford-ríkisfangelsi Flórída. Þetta er áttunda aftakan í Bandaríkjunum á þessu ári, þar af fimmta aftakan á Flórída.Fanginn, Chadwick Willacy, var 58 ára gamall en hann var dæmdur til dauða árið 1991 fyrir að hafa myrt nágranna sinn Marlys Sather í ráni á heimili hennar ári áður.Alls voru 47 aftökur í Bandaríkjunum á síðasta ári, sem er mesti fjöldi á einu ári síðan 2009 þegar 52 voru teknir af lífi. Flestar aftökurnar fóru fram í Flórída eða 19 talsins. 23 ríki Bandaríkjanna hafa afnumið aftökur og þrjú ríki, Kalifornía, Oregon og Pensylvanía, hafa frestað aftökum.Donald Trump Bandaríkjaforseti er hlynntur dauðarefsingum og hefur kallað eftir því að þær verði nýttar í refsiskyni fyrir hrottalega glæpi.
Fangi tekinn af lífi í Flórída

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta