Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lufthansa aflýsir 20.000 flugferðum

Þýska flugfélagið Lufthansa aflýsir 20.000 flugferðum fram í október vegna hækkandi verðs á flugvélaeldsneyti, samkvæmt fréttatilkynningu frá flugfélaginu sem birt var í gær. Með þessu ráðgerir flugfélagið að það spari 40.000 tonn af flugvélaeldsneyti.Það er fyrst og fremst styttri flugferðum sem er aflýst. Flugfélagið ætlar sér ekki að breyta eða aflýsa flugáætlunum fyrir lengri flugferðir en verið er að endurskoða flugáætlun fyrir miðlungs langar flugferðir og gerir flugfélagið ráð fyrir að tilkynna um breytingar þar á í lok mánaðarins eða byrjun maí.Lufthansa flýgur milli Frankfurt og Keflavíkur tíu sinnum í viku. Ekki kemur fram hvort breyttar flugáætlanir félagsins hafi áhrif á þá flugleið.
Lufthansa aflýsir 20.000 flugferðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta