Yfirvöld í Flórída hafa hrundið af stað rannsókn til að kanna hvort gervigreind hafi spilað hlutverk í banvænni fjöldaárás við Ríkisháskólann í Flórída á síðasta ári. James Uthmeier, ríkissaksóknari Flórída, segir að ákveðið hafi verið að ráðast í rannsóknina eftir að saksóknarar skoðuðu samskipti hins grunaða árásarmanns og gervigreindarspjallmennisins ChatGPT, sem er í eigu OpenAI.„Ef ChatGPT væri manneskja væri það að horfa fram á ákæru fyrir morð,“ segir Uthmeier.Ríkissaksóknarinn bendir á að lög í Flórída kveði á um að hver sá sem aðstoði við eða ráðleggi öðrum um hvernig fremja skuli glæp megi vera skilgreindur sem samverkamaður. Þannig geti sá aðili verið sóttur til saka líkt og sá sem framdi verknaðinn.Phoneix Ikner, sem grunaður er um skotárásina, er sagður hafa leitað ráða hjá Ch