Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í dag fjárlagatillögu ríkisstjórnar Donalds Trump varðandi varnarmál og vill ríkisstjórnin að þingið verji 1,5 billjón dala til varnarmála á næsta ári. Það myndi þýða um 42 prósenta aukningu á milli ára. Ekki er talinn með aukafjárveitingarbeiðni vegna stríðsins gegn Íran, sem gæti hljóðað upp á tvö hundruð milljarða dala.