Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, segir til skoðunar hjá innviðaráðuneytinu að ráðast í fyrirbyggjandi aðgerðir þar sem hætta á eldgosum er mest. Hann telur þó viðbragðsáætlanir sem nú séu til staðar vegna eldgosa og hraunrennslis duga til þess að takast á við ástandið á Reykjanesi.Þá segir Runólfur Veðurstofu Íslands og sveitarfélög hafa unnið að langtíma hættumati í sameiningu.Veðurstofan gaf í dag út nýja skýrslu um hraunavá sem sýnir hvar gæti gosið og hraun runnið á Reykjanesinu og höfuðborgarsvæðinu. Lykilinnviðir á borð við virkjanir og vatnsból eru á viðkvæmum slóðum.Runólfur segir viðbragðsáætlanirnar vera í stöðugri uppfærslu og að ástæða sé til þess að fara yfir þær þegar það komi ný gögn. „Þetta er búið að vera langtímaverkefni þannig