Fiskflutningabíll valt á hliðina á Þorlákshafnarvegi um klukkan átta í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Pétri Péturssyni, slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu, var einn í bílnum. Hann komst út úr honum að sjálfsdáðum og fékk aðhlynningu frá starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.Á vef Vegagerðarinnar segir að Þorlákshafnarvegi hafi verið lokað um óákveðinn tíma vegna umferðaróhappsins. Í bílnum voru meðal annars fiskikör með fiskiafurðum. Pétur segir slökkviliðsmenn vinna að því að hreinsa upp fiskiafganginn og olíu sem lekið hefur úr flutningabílnum.Þorlákshafnarvegur er lokaður vegna atviksins.Skjámynd / Umferdin.is