Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjaforseti framlengir vopnahléið við Íran

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að framlengja vopnahlé Bandaríkjanna og Ísraels við Íran til þess að aukinn tími gefist til samningaviðræðna. Herkví bandaríska sjóhersins við Hormússund fellur hins vegar ekki úr gildi.Í færslu sem Trump birti á samfélagsmiðlinum Truth Social í kvöld sagðist hann hyggjast framlengja vopnahléð þar til Íranar settu fram tillögu um hvernig hægt væri að binda enda á átökin.„Í ljósi þess að stjórn Írans er alvarlega sundruð, sem er ekki óvænt, og að beiðni Asim Munir hershöfðingja og Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistan, höfum við verið beðin um að fresta árás okkar á Íran þar til leiðtogar þeirra og fulltrúar hafa lagt fram samstillta tillögu,“ segir í færslu forsetans.Hann segist hafa skipað Bandaríkjaher að halda uppteknum hætti í Hormússundi
Bandaríkjaforseti framlengir vopnahléið við Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta