Báðar deildir breska þingsins hafa samþykkt frumvarp sem bannar börnum fæddum eftir 2008, sem í dag eru yngri en sautján ára, að kaupa sígarettur á lífsleiðinni.Frumvarpið, sem nefnist tóbaks- og rafrettufrumvarpið, miðar að því að koma í veg fyrir að þeir einstaklingar sem fæddir eru eftir 1. janúar 2009 byrji nokkurn tímann að reykja.Heilbrigðisráðherra Bretlands, Wes Streeting, segir frumvarpið vera sögulega stund fyrir heilsu þjóðarinnar sem leiða muni til „fyrstu reyklausu kynslóðarinnar“ sem hlíft verði við ævilangri fíkn og skaða af völdum tóbaks og nikótíns.Þegar bannið hefur fengið samþykki konungs hefur breska ríkisstjórnin jafnframt umboð til þess að útvíkka reykingabann innandyra til útivistarrýma á borð við leiksvæði barna og svæði fyrir utan skóla og sjúkrahús.Bannið veitir s